Umís ehf. Environice er fyrirtæki sem veitir ráðgjöf um umhverfismál og sjálfbæra þróun. Það var stofnað árið 2000 af Stefáni Gíslasyni umhverfisstjórnunarfræðingi.
 
Fyrirtækið er staðsett í Borgarnesi, og þar starfa nú tveir til þrír sérfræðingar á sviði umhverfismála. Fyrirtækið veitir ráðgjöf um hvaðeina sem snýr að umhverfismálum, jafnt til einstaklinga, fyrirtækja og stjórnvalda. Lögð er áhersla á persónulega og faglega þjónustu, enda er ekki til nein ein aðferð eða ein lausn sem hentar öllum. Hlutverk starfsmannanna er að finna bestu lausnina á hverjum tíma í samvinnu við viðskiptavininn. 
 
Sjálfbær þróun er höfð að leiðarljósi í allri vinnu fyrirtækisins. Reynt er að horfa á umhverfismálin í víðu samhengi og lögð mikil áhersla á heildarsýn og þverfaglega hugsun. Það er nefnilega ekki hægt að leysa vandamál með sama hugarfari og var notað þegar vandamálin voru búin til, eða það sagði Albert Einstein alla vega.

 

Umhverfismál snúast ekki bara um tæknilegar lausnir. Þau snúast ekki síður um stjórnun, hugarfar og aðra mannlega þætti. Starfsfólk UMÍS ehf. Environice hefur sérhæft sig í að sjá samhengið þarna á milli. 
 

 

Helstu verkefni

 

(Síðast uppfært 21. júní 2010)

 
  Forsíða
  Fréttir
  Um Environice
  Verkefni
  Fróðleikur
  Alþjóðasamstarf
  Mat á umhverfisáhrifum
  Útgáfa
  Fjallvegahlaup
  Hafðu samband
  Leit